Um vef UMFB Hafðu samband
RSS:
Letur:
Útlit
Fréttir
select
   

Sigur á Fram í háspennuleik
Körfuknattleiksdeild
UMFB sigraði Fram í gær, 99-98, í háspennuleik þar sem úrslitin réðust á lokasekúndunni. Auðunn "Jordan" Einarsson var með stáltaugar undir lokin og tryggði sigurinn með 2 vítaskotum þegar 1,8 sekúndur voru eftir. Nánar má lesa um leikinn á síðu körfuknattleiksdeildarinnar.

Lesa


Sigur og tap á móti toppliðinu
Körfuknattleiksdeild
UMFB lék tvo leiki við Augnablik í 2. deild karla á helginni. Fyrir leikina trjóndi Augnablik efst og ósigrað í riðlinum. Það fór svo að lokum að þeir hlutu sitt fyrsta tap í vetur á móti Bolvíkingum en sluppu þó með sigur í seinni leiknum. Nánar má lesa um leikina á síðu körfuknattleiksdeildarinnar www.umfb-basketball.com

Lesa


Gleðileg jól
Ungmennafélag Bolungarvíkur óskar öllum félagsmönnum og stuðningsaðilum gleðilegra jóla og þakkar stuðninginn og samstarfið á árinu.

Lesa


UMFB gallar komnir
Þeir sem pöntuðu UMFB galla í haust geta sótt þá á fimmtudag. Vinsamlegast hafið samband jonnil[at]simnet.is varðandi greiðslu.
Þegar gallar eru greiddir er hægt að sækja þá á Þjóðólfsveg 7.


Lesa


Tap fyrir Njarðvík í bikarnum
Körfuknattleiksdeild
UMFB beið lægri hlut fyrir b-liði Njarðvíkur í Poweradebikar karla í Ljónagryfjunni í Njarðvík á helginni, 104-89. Gunnlaugur Gunnlaugsson var stigahæstur hjá Bolvíkingum með 17 stig en fyrrum landsliðskempan Páll Kristinsson var öflugastur hjá Njarðvíkingum og skoraði 39 stig. Nánar má lesa um leikinn á vefsíðu körfuknattleiksdeildarinnar.

Lesa


Öruggur sigur á KV
Körfuknattleiksdeild
UMFB vann öruggan 32 stiga sigur á Knattspyrnufélagi Vesturbæjar í Bolungarvík í gær. Lokastaðan 87-55. Með sigrinum eru Bolvíkingar komnir í fjórða sæti riðilsins en fjögur efstu liðin fara í úrslitakeppnina í vor. Nánar má lesa um leikinn á http://umfb-basketball.com

Lesa
Skráðar fréttir: 345 - Síða: 1 af 58